Flatey á Breiðafirði

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...

Flatey á Breiðafirði er stærsta Vestureyjan á Breiðafirði og tilheyra henni alls 40 eyjar og hólmar. Hún er talin að hafa myndast undir afli skriðjökla á ísöld og þegar jökulfarginu létti hafi hún risið upp úr sæ. Flatey er um 2 km á lengd og um hálfur km þar sem hún er breiðust. Eyjan er flatlend, þó gengur hæðarhryggur eftir henni endilangri. Lundaberg er hæsti hluti hennar, nærri norðausturenda hennar.

Vestureyjarnar liggja á stórri megineldstöð sem kennd er við Flatey og finnst því víða jarðhiti og margskonar stuðlaberg. Flatey er flokkuð undir þjóðjörð af ríkinu og er eyjan talin sem náttúruperla og menningarafurð Íslands. Mikið fuglalíf er á eyjunni og er hluti hennar friðaður (sérstaklega á varptíma) síðan 1975. Flatey er því tilvalinn staður fyrir fuglaskoðendur. Gjöful fiskimið liggja allt í kringum eyjuna en í undirdjúpunum kringum Flatey er ekki aðeins fiskur heldur einnig merkar fornleifar; tvö skip. Annað sökk á 18. öld og hitt á 19. öld.

Heimild: Sjá hér

Flatey er þekkt fyrir menningu.

West Iceland

1,810 Views

Flatey

Eyjan er vinsæl sumardvöl.

Algengar spurningar

Hvar er Flatey á Breiðafirði?
Flatey er eyja í Breiðafirði.
Tilheyrir Flatey sveitarfélagi?
Já, Flatey tilheyrir Vesturbyggð.
Er Flatey byggð?
Já, hún er að hluta byggð yfir sumartímann.
Er Flatey friðlýst eða vernduð?
Já, eyjan er að hluta vernduð.
Er hægt að heimsækja Flatey?
Já, Flatey er aðgengileg með ferju.


Staðir nálægt mér

© Anton Stefánsson | antonstefans@gmail.com

Vefsíðan notast við kökur