Grettislaug

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...

Grettislaug er heit laug rétt við sjóinn í landi Reykja á Reykjaströnd, kennd við Gretti Ásmundarson, en sagt er að hann hafi eftir Drangeyjarsund sitt „bakast þar lengi um nóttina, því honum var kalt orðið eftir sundið nokkuð svo“.

Allt fram á 20. öld voru laugarnar tvær, önnur hlaðin upp og notuð til þvotta og kallaðist Reykjalaug en hin lítill pollur sem nefndur var Grettislaug. Haustið 1934 gerði mikið óveður á Skagafirði og eyðilögðust laugarnar þá báðar í brimi, því sjávarkamburinn færðist ofar. Heita vatnið kom þá upp sjávarmegin við hann.

Árið 1992 var laugin svo endurgerð að undirlagi Jóns Eiríkssonar Drangeyjarjarls, bónda á Fagranesi, hlaðin upp og varnargarður gerður fyrir framan hana. Síðan hefur hún kallast Grettislaug. Laugin er um 4,5 s 3,75 m og um 80 cm djúp. Vatnið er um 42°C heitt.

Heimild: Sjá hér

Grettislaug er staðsett við strandlengju.

North Iceland

5,286 Views

Grettislaug

Laugin tengist sögum Grettis.

Algengar spurningar

Hvar er Grettislaug?
Grettislaug er á Norðurlandi.
Hvað er Grettislaug?
Hún er lítil laug með heitu vatni.
Er Grettislaug tengd þjóðsögu?
Já, laugin er tengd Gretti Ásmundarsyni.
Er Grettislaug manngerð?
Laugin er mótuð af mannavöldum.
Er Grettislaug opin almenningi?
Já, hún er heimsótt á eigin ábyrgð.