Fyrst var byggður viti í Gróttu árið 1897 að fyrirsögn starfsmanna dönsku vitastofnunarinnar. Núverandi viti var reistur hálfri öld síðar, árið 1947, sívalur kónískur turn úr steinsteypu með ensku ljóshúsi, 24 m að hæð, hannaður af Axel Sveinssyni verkfræðingi. Upphaflega var vitinn húðaður utan með ljósu kvarsi en hefur nú verið kústaður með hvítu þéttiefni.
Linsan sem sett var í vitann frá 1897 er enn í notkun í Gróttuvita. Gastæki var sett í vitann er hann var tekinn í notkun en hann var rafvæddur árið 1956.
Vitavörður var búsettur í Gróttu frá 1897 til 1970. Vitaverðirnir voru aðeins tveir, Þorvarður Einarsson og Albert sonur hans. Vitavarðarhúsin hafa nú verið gerð upp og eru í eigu Seltjarnarnesbæjar.
Heimild: Sjá hérMynd Sunna Wium
Vitinn stendur við sjóinn.
Eigandi: Gistiheimilið Lyngholt
Eigandi: Marta Gunnarsdóttir
Eigandi: Jón Ingi Cæsarsson - Flickr
Eigandi: Jóhanna Kristín Hauksdóttir - Flickr
Eigandi: Helgi Halldórsson - Flickr
Eigandi: Siggimus
Eigandi: Sunna Wium - Flickr
Mjög vinsæll göngustaður.
Staðir nálægt mér
© Anton Stefánsson | antonstefans@gmail.com