Sauðanesviti

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...

Árin 1933-1934 var byggður ljós- og hljóðviti á Sauðanesi, vestan mynnis Siglufjarðar. Fyrir vitavörð var klætt bárujárnsklætt timburhús, hæð og ris, á steinsteyptum kjallara og útihús. Á Sauðanesvita er 4 m hátt  sænskt ljóshús með eirþaki en veggir eru steinsteyptir. Vitinn var  útbúinn með 125° díoptískri 500 mm linsu og gasljóstækjum. Hann var  raflýstur árið 1961 með straumi frá ljósavélum en gas haft til vara til  ársins 1995. Þá var sett varapera í vitann, tengd rafgeymum.

 
Hljóðvitinn var einnig tekinn í notkun árið 1934 og sendi í þoku og  dimmviðri þrjú hljóðmerki á mínútu. Hljóðmerkin voru: hljóð 2 sek. +  þögn 5 sek. + hljóð 2 sek. + þögn 5 sek. + hljóð 2 sek. + þögn 44 sek.  Hljóðvitinn var tekinn úr notkun árið 1992.
Vitarnir á Sauðanesi voru í tveimur turnum. Í þeim lægri, sem er nær  sjónum, var hljóðvitinn en ljósvitinn er í þeim hærri. Á þeim báðum er  stallað þakskegg og steinsteypt handrið með bogadregnum opum. Við efri  hlið ljósvitans er lágreist varðstofa og við hana og vitaturnana báða er anddyri. Vélasalur og olíugeymsla eru í einnar hæðar viðbyggingu með  lágu risþaki.
Á sjávarbakkanum neðan við vitann er vélknúið spil með gálga og bómu sem notuð var til að draga upp efni og nauðsynjar. Búnaður þessi var  upphaflega settur upp í Aðalvík á Hornströndum af breska setuliðinu sem  hafði þar bækistöðvar í síðari heimsstyrjöldinni.
Árið 1966 var fullt starf vitavarðar lagt niður og hætti Vitastofnun að  bera kostnað af búsetu vitavarðar á jörðinni Engidal á Sauðanesi og tók  hann jörðina á leigu.
 
Heimild: Sjá hér

Vitinn er á fallegum stað.

North Iceland

1,019 Views

Sauðanesviti

Fallegt útsýni yfir hafið.

Algengar spurningar

Hvar er Sauðanesviti?
Sauðanesviti er á Langanesi á Norðurlandi.
Er Sauðanesviti við sjó?
Já, hann er við strönd.
Er Sauðanesviti virkur?
Já, hann er virkur leiðarviti.
Er Sauðanesviti sögulegur?
Já, hann er sögulegt mannvirki.
Er hægt að heimsækja Sauðanesvita?
Já, hann er aðgengilegur almenningi.


Staðir nálægt mér

© Anton Stefánsson | antonstefans@gmail.com

Vefsíðan notast við kökur