Silfrastaðakirkja

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...

Silfrastaðir er bær og kirkjustaður í mynni Norðurárdals í Skagafirði.

Land jarðarinnar er mjög víðáttumikið, nær frá Bóluá í Blönduhlíð fram að Kotá í Norðurárdal, og er mestur hluti þess fjallendi, Silfrastaðafjall. Það hefur nú að mestu verið skipulagt sem skógræktarland. Áður tilheyrði öll Silfrastaðaafrétt jörðinni en hún var seld sveitarfélaginu 1896 ásamt hjáleigunum Hálfdanartungum og Krókárgerði í Norðurárdal, sem komnar voru í eyði og hafa ekki byggst aftur. Skilarétt hreppsins, Silfrastaðarétt, er á eyrinni fyrir neðan bæinn.

Torfkirkja sem áður var á Silfrastöðum, byggð 1842, er nú í Árbæjarsafni í Reykjavík. Kirkjan sem þar er núna er áttstrend að lögun, byggð árið 1896 (vígð 12. júlí).

Inni í Norðurárdal, skammt frá brúnni yfir Norðurá, gengur höfði fram á eyrarnar sem heitir Skeljungshöfði og á honum er allstór steinn sem kallast Skeljungssteinn. Í gegnum hann eru tvö göt og segir þjóðsagan að draugurinn Skeljungur hafi verið bundinn við steininn en þetta munu reyndar vera för eftir trjáboli sem hraun hefur runnið yfir. Steinninn er friðaður.Bólu-Hjálmar skráði þjóðsöguna um Skeljung og Grím Skeljungsbana. Í Sturlungu er talað um að Eyjólfur ofsi Þorsteinsson og menn hans hafi komið við í Skeljungsskála á leið sinni til Flugumýrarbrennu og er ekki ólíklegt að þar hafi þá verið bær.

Heimild: Sjá hér
Mynd: Jón Ingi

Silfrastaðakirkja er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.

North Iceland

707 Views

Silfrastaðakirkja

Silfrastaðakirkja er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar

Hvar er Silfrastaðakirkja?
Silfrastaðakirkja er í Skagafirði á Norðurlandi.
Er Silfrastaðakirkja í þéttbýli?
Nei, hún er staðsett utan þéttbýlis.
Er Silfrastaðakirkja starfandi kirkja?
Já, hún er starfandi kirkja.
Er Silfrastaðakirkja hluti af þjóðkirkjunni?
Já, hún tilheyrir þjóðkirkjunni.
Er Silfrastaðakirkja opin almenningi við sérstök tilefni?
Já, hún er opin almenningi við helgihald og viðburði.