Sorry, english text is not ready...
Snorralaug í Reykholti eða Snorralaug er íslensk laug sem finna má í Reykholti. Snorralaug var ein af hinum 10 fyrstu friðlýstu fornminjunum á Íslandi. Hún er ein af þrettán laugum sem vitað er um að notaðar hafi verið til forna, og ein af fjórum sem enn eru nothæf. Laugin er u.þ.b. 4 metrar í þvermál; og þar sem botn laugarinnar er ójafn er hún misdjúp, en dýptin er breytileg á milli 0.70 til 1 metra djúp. Þrep liggja niður í laugina, og er hlaðin úr tilhöggnu hveragrjót. Fyrir tilstilli fornleifauppgraftar hefur það verið leitt í ljós að tvær rennur veittu heitu vatni í laugina úr hverinum Skriflu sem hefur nú verið eyðilögð. Á barmi aðrennslisins má sjá fangamerkið V.Th. 1858. á steini og er það fangamark Sr. Vernharðs Þorkelssonar sem lét gera við laugina það ár.