Sorry, english text is not ready...
Undirheimar – Dagsferð í Leiðarenda - Arctic Adventure
Hellaferð í Leiðaraenda helli í Bláfjöllum.
Erfiðleikastig 2 af 5 mögulegum: Auðvelt
Skoðaðu falda heiminn í og undir hrauninu í Bláfjöllum. Það tekur einungis 25 mínútur að keyra að Leiðarenda frá Reykjavík.Leiðarendi er fullkomið dæmi um íslenska hraungöng þar sem þú getur séð hinn dökka og frábrugðna heim sem liggur undir okkar heim. Undirheima ferðin er einstök og spennandi hellaferð í Leiðarenda helli. Þar eru skoðaðar ótrúlegar hraunmyndanir og mögnuð listaverk sem náttúran hefur meitlað með tíma, frost og hita að vopni. Við klifrum, skríðum og göngum á ferð okkar fjarri sólu og krakkarnir eru fræddir um myndun hellisins. Það er ekki til betri leið til að sjá hvernig Ísland var í raun skapað!
Verð: 12.990 ISK á mann með akstri til og frá Reykjavík. 9.990 ISK á mann ef hist við Leiðarenda.
Gildir: 15. Maí – 15. September.
Öruggar brottfarir: Þriðjudagar, föstudagar og sunnudagar frá 13:00 – 13:30 frá Reykjavík.
Lágmark: 2 þátttakendur á völdum dögum. Annars 4 þátttakendur.
Hámark: 40 þátttakendur.
Lengd ferðar: 2-3 klukkustundir.
Aldurstakmark: 10 ára.
Fjarlægð frá Reykjavík: 30 kílómetrar.
Þátttakendur verða að taka með sér: Hlýjan útivistarfatnað, vatnsheldan jakka og buxur og hlýja peysu. Góðir gönguskór eru lykilatriði. Þátttakendur fá hellabúnað eins og höfuðljós og hjálma.
Fyrirvari: Allar hellaferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Rafting tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarra aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrir því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku.
Sjá nánar á http://www.adventures.is/