Sorry, english text is not ready...
Í Stóru-Dímon koma saman mörk Austur-Landeyja, Fljótshlíðar og Vestur-Eyjafjalla. Stóra Dímon á sér systur sem er Litla Dímon. Nafnið er talið koma úr latínu og merkja tvífjöll, eða tveir eins. Þá er einnig sagt að orðið merki heysáta og vissulega minnir Dímon á heysátu, hér á bleikum ökrunum. Við rætur fjallsins er skilti frá Sögusetrinu sem segir frá húskarlavígum Hallgerðar og Bergþóru í Njáls sögu. Þar segir frá vígi Kols, verkstjóra hjá Gunnari á Hlíðarenda, en hann vó Svart sem var húskarl Njáls á Bergþórshvoli. Hann var þar í skógarhöggi í Rauðuskriðum, eins og fjallið hét þá. Fjallið er 178 metra hátt og er það verðugt verkefni, bæði hjá börnum sem fullorðnum að klifra upp á Dímon.
Á þjóðvegi 1 leiðinni til Vík frá Hvolsvelli, áður en að farið er yfir Markarfljótsbrúnna, er beygt til vinstri inn Dímonarveg (250). Þaðan eru nokkrir kílómetra að Stóru-Dímon. Á Fljótshlíðarveginum (261) er afleggjarinn rétt áður en komið er að Múlakoti, nokkurn veginn til móts við Gluggafoss.
Heimild: Sjá hér