Sorry, english text is not ready...
Hlöðufell er rismikill og formfagur móbergsstapi í Árnessýslu. Hlöðufell er norðan Laugarvatns og sunnan Langjökuls. Norðan í Hlöðufellinu er sísnævi. Toppurinn er hömrum girtur og ekki víða aðgengilegur.
Suðvestan undir Hlöðufellinu eru Hlöðuvellir og þar er skáli Ferðafélags Íslands. Upp af húsinu er hamragil og þar um er ein af fáum gönguleiðum sem er fær á Hlöðufellið. Af Hlöðufellinu er gífurlega mikil útsjón til allra átta. Austan við Hlöðufellið er hellirinn Jörundur, hann var friðlýstur 1985. Sunnan undir Hlöðufellinu er Rótarsandur, þar á Brúará upptök sín. Það er ákaflega sérstök náttúrusmíð þar sem vatnið fossar úr gljúfurveggjunum.
Heimild: Sjá hér