Sorry, english text is not ready...
Loftsalahellir er í suðaustanverðu Geitafjalli, allstór hellisskúti. Þessi hellir er hinn forni þingstaður bænda í Mýrdal en nálægt honum er þúst ein í brekku er nefnist Gálgaklettur. Talið er að skv. nafngiftinni hafi farið þar fram aftökur sakamanna fyrr á öldum en ekki eru til beinar heimildir er bera því öruggt vitni. Árið 1886 samþykkti þingheimur bænda í Loftsalahelli tillögu þess efnis að skora á Vestmannaeyjakaupmenn að senda verslunarskip til Víkur.
Heimild: Sjá hér
Mynd: Anton Stefánsson