Sorry, english text is not ready...
Á Leirubakka eru góð tjaldstæði með fullkominni hreinlætisaðstöðu og leiktækjum fyrir börnin. Þaðan er gott útsýni á eldfjallið Heklu. Rétt við hliðina á tjaldstæðinu er Heklusetrið, þar er veitingastaður og Heklusýning. Þá bíður Víkingalaugin úti í hrauninu, upplýst þegar kvölda tekur. Á Leirubakka er einnig hestaleiga fyrir stutta og lengri reiðtúra.
Á staðnum er bensínsala en þar má einnig kaupa ýmsar nauðsynjar fyrir ferðamenn, góðgæti, gos, einnota grill og ýmislegt annað sem þarf í útileguna.
Að sjálfsögðu er hluti af tjaldsvæðinu fyrir tjaldvagna og húsbílar eru einnig velkomnir. Á hluta tjaldstæðisins er aðgangur að rafmagni. Ekki þarf að panta fyrirfram nema um stærri hópa sé að ræða.
Verð á mann næsta sumar er kr. 1.100.- fyrir fullorðna, 500.- fyrir börn 6-12 ára. 800.- kr. fyrir rafmagn á sólarhring. (Takmarkaður fjöldi sem kemst í rafmagn)
Söngskálinn á Leirubakka stendur skammt frá tjaldsvæðinu. Hann er til leigu fyrir hópa, sem vilja hafa sameiginlega aðstöðu.
Heimild: Sjá hér
Mynd: Leirubakki