Sorry, english text is not ready...
Tjaldsvæðið á Seyðisfirði er gróið og rómað fyrir góða þjónustu og hlýlegt umhverfi. Í sumar verður tekið í notkun nýtt þjónustuhús þar sem verður bætt aðstaða fyrir gesti, fleiri salerni og sturtur . Eldunaraðstaða og seturstofa verður í nýja þjónustuhúsinu. Á tjaldsvæðinu eru sturtur, salerni, þvottavél, þurrkari, borðsalur, eldunaraðstaða inni , útigrill og aðstaða fyrir húsbíla, þar með talið rafmagn og hreinsiaðstaða fyrir húsbíla-wc. Tjaldsvæðið er hólfað niður með hávöxnu kjarri og í næsta nágrenni er sjoppa, matvöruverslun, sundlaug, matsölustaðir, íþróttamiðstöð, sauna og heitir pottar.
Á Seyðisfirði syngja fossarnir þig í svefn.
Styttri og lengri gönguleiðir, bryggjuveiði og fjöruferð er ánægjuleg afþreying og kostar ekkert annað en úthaldið.
Tjaldsvæði Seyðisfjarðar er aðili að Útilegukortinu, finna má upplýsingar um það hér. Á vef útilegukorsins eru ýmsar gagnlegar upplýsingar um Tjaldsvæði Seyðisfjarðar.
Tjaldsvæðið er staðsett við Ránargötu í hjarta bæjarins. Upplýsingar í síma 472-1521/861-7789
Heimild: Sjá hér
Mynd: Tjaldstæði Seyðisfjarðar