Sorry, english text is not ready...
Húsatóftavöllur liggur við þjóðveginn að Reykjanesvita, vestan við Grindavík, um 6 km frá Bláa Lóninu. Völlurinn er nú (2012) 18 holu völlur, fimm þeirra eru á bökkunum og þrettán eru norðan þjóðvegarins og teygja sig skemmtilega inn í hraunið í austurátt. Fyrst eru holurnar á efri vellinum leiknar inn í hraunið í austurátt frá golfskála. Þegar 6 fyrstu brautirnar hafa verið leiknar snúa kylfingar við í vestur átt og ljúka fyrru hlutanum síðan í skálinni frægu (9. flöt á móts við golfskálann. Þá eru túnið leikið fram og til baka á næstu þremur holum og að síðustu eru bakkarnir leiknir. 18. hola liggur við gamla skála og er tignarleg par 3 hola sem leiggur upp að núverandi golfskála.
Völlurinn er því fullur andstæðna og þrískiptur ef svo má að orði komast, með dæmgerðan strandarvöll, gróið ræktunarland og þriðja hluta með brautir sem hraunið umliggur. Húsatóftavöllur liggur á sprungusvæði og opnar, tignarlegar gjár blasa við kylfingum á mörgum brauta efri vallarins.
Hægt að segja að um sannkallaða náttúruperlu er að ræða því hann stendur á plötuskilum þar sem Evrasíuplatan og Ameríkuplatan mætast í öllu sínu veldi.
Völlurinn er fremur auðveldur á fótinn og þó mikið sé um landslag í vellinum er lítið um holt og hæðir.
Vallarmet Davíðs Arthúrs 24. júní 2004
Golfklúbbur Grindavíkur var stofnaður árið 1981, þann 14. mai.
Árið 2009 var hafist handa við stækkun á vellinum í 18. holur eftir teikningum frá Hannesi Þorsteinssyni og yfirstjórn Bjarna Hannessonar vallarstjóra.
Í janúar 2011 var einnig ráðist í endurbætur á núverandi íbúðarhúsnæði í eigu golfklúbbsins með það að markmiði að taka í notkun sem framtíðar golfskála GG árið 2012.
Heimild: Sjá hér
Mynd: Golfklúbbur Grindavíkur