Sorry, english text is not ready...
Áður en Skíðamiðstöðin í Oddsskarði var byggð upp hafði Skíðadeild Þróttar í Neskaupstað yfir að ráða gömlum skíðaskála í Oddsdal en þar var einungis ævaforn togbraut og skálinn fyrst og fremst notaður þegar keppni á skíðum fór fram eða í nemendaferðum á vegum grunnskólans og gagnfræðaskólans í Neskaupstað.
Skíðaiðkun Norðfirðinga fór að mestu fram í Kúahjöllum ofan byggðar í Neskaupstað en þar var togbraut.
Eskfirðingar voru einnig með togbraut nokkru neðar en núverandi skíðasvæði í Oddsskarði og var sú braut töluvert notuð á tímabili.
Reyðfirðingar höfðu ekki eigið skíðasvæði fyrr en með tilkomu Skíðamiðstöðvarinnar í Oddsskarði en með tilkomu hennar tóku Norðfirðingar, Eskfirðingar og Reyðfirðingar sig saman um að koma upp góðu skíðasvæði fyrir alla íbúa svæðisins.
Gunnar Ólafsson, fyrrum skólastjóri Nesskóla, átti hugmynd að staðsetningu skíðasvæðisins þar sem það er í dag.
Fyrsta lyftan var tekin í notkun 1980. 1990 var önnur lyfta tekin í notkun, lyfta sem tekur við þar sem lyftu frá 1980 sleppir.
Þar með var komin samfelld 1257,9 metra lyfta, þ.e. ferð með lyftunni byrjar í 513 metrum yfir sjávarmáli og þegar komið er upp á topp er viðkomandi kominn í 840 metra hæð yfir sjávarmáli. 1986 var tekin í notkun toglyfta í barnabrekku. Ný barnalyfta var tekin í notkun 1999 og leysti hún af hólmi gömlu toglyftuna. Barnabrekkan kallast nú Sólskinsbrekka enda nýtur sólar þar fyrst á morgnana.
Skíðaskálinn var byggður árið 1986 af Róbert Jörgensen eftir teikningu Magnúsar Gunnarssonar. Í skálanum er veitingasala og hægt er að fá gistingu í svefnpokaplássi fyrir allt að 35 manns í einu.
Troðari var fyrst notaður á svæðinu 1988 og svæðið var flóðlýst 1994. Skíðasvæðið er viðurkennt af FÍS, alþjóða skíðasambandinu, og leyfilegt er að halda alþjóðleg skíðamót á svæðinu.
Heimild: Sjá hér
Mynd: Oddskarð