Laugardælakirkja er kirkja að Laugardælum í Hraungerðishreppi (nú Flóahreppi). Hún var vígð 1965. Kirkjan er steinsteypt og alls 300 fermetrar að flatarmáli. Í henni er pípuorgel og kirkjubekkirnir rúma 70 manns í sæti.
Bjarni Pálsson, byggingarfulltrúi á Selfossi,teiknaði kirkjuna, en hann teiknaði einnig Selfosskirkju. Sigfús Kristinsson byggingameistari sá um smíði kirkjunnar.
Kaþólskar kirkjur að Laugardælum voru helgaðar Guði, Maríu mey og heilagri Agötu. Kirkjan tilheyrir Hraungerðisprestakalli.
Kirkjan komst í fréttirnar í janúar 2008, þegar Bobby Fischer, fyrrverandi heimsmeistari í skák, var jarðsettur þar í kyrrþey.
Heimild: Sjá hérMynd: A.More.S
Laugardælakirkja er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.
Eigandi: A.More.S - Flickr
Laugardælakirkja er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
Staðir nálægt mér
© Anton Stefánsson | antonstefans@gmail.com