Skálholtskrikja

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...

Skálholtskirkja er opin veturinn 2012-2013 frá 9 til 18.

Kirkjan er opnuð skömmu fyrir morgunsöng (sem hefst klukkan níu) og henni er lokað eftir aftansönginn (sem hefst klukkan 18). Þessar stundir er öllum opnar og taka stutta stund, 10 – 15 mínútur. Þessi tíðargjörð á sér fornar rætu og grundvallast í Guðs orði.

Marga morgna er orangisti kirkjunnar við æfingar og ljúft að hlýða á leik hans á Frobenísusar orgelið.

Skálholtskirkja var vígð árið 1953 og á því 50 ára vígluafmæli árið 2013.

Þegar líða tók að þúsund ára afmæli biskupsstóls á Íslandi jókst áhugi ýmsra fyrir endurreisn Skálholts í einhverri mynd. Húsameistara ríkisins, Herði Bjarnasyni, er þá falið að teikna nýja Skálholtskirkju á grunni þeirrar, ,,er að réttu kallast andleg móðir allra annarra vígðra húsa á Íslandi.“ (Hungurvaka).

Á Skálholtshátíð 1956 er lagður hornsteinn hinnar nýju kirkju en sjálf var kirkjan vígð 1963 af biskupi landsins, dr. Sigurbirni Einarssyni. Á vígsludegi þann 21. júlí afhenti kirkjumálaráðherra, dr. Bjarni Benediktsson, þjóðkirkjunni Skálholt til varðveislu og eflingar kristninni í landinu.

Heimild: Sjá hér
Mynd: Andrew Dunn

Skálholtskrikja er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.

South Iceland

486 Views

Skálholtskrikja

Skálholtskrikja er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar

Hvar er Skálholtskirkja?
Skálholtskirkja er í Skálholti á Suðurlandi.
Er Skálholtskirkja í þéttbýli?
Nei, hún er staðsett utan þéttbýlis.
Er Skálholtskirkja starfandi kirkja?
Já, hún er starfandi kirkja.
Er Skálholtskirkja hluti af þjóðkirkjunni?
Já, hún tilheyrir þjóðkirkjunni.
Er Skálholtskirkja opin almenningi við sérstök tilefni?
Já, hún er opin almenningi við helgihald og viðburði.