Sorry, english text is not ready...
Einstakt tjaldstæði í skjólgóðum hvammi fyrir ofan bæinn, með fínu þjónustuhúsi og góðri þjónustu fyrir tjald- og húsvagna.
Góðar gönguleiðir eru fyrir ofan svæðið í fallegri náttúru.
Hvammstangi er stærsti þéttbýlistaður í Húnaþingi vestra.
Hann er tilvalinn áfangastaður ferðamanna, þar er mjög góð sundlaug,verslanir,veitingastaður,söfn,gallerí og önnur nauðsynleg þjónusta.
Frá Hvammstanga er stutt að keyra út á Vatnsnes sem hefur að geyma fjölmarga sögustaði,fallegt landslag og síðast en ekki síst selalátur í þægilegu göngufæri.
Er aðeins 6 km frá þjóðvegi, miðja vegu milli Reykjavíkur og Akureyrar.
Verðskrá fyrir sumarið 2012
Verð á mann 1.000 kr
frítt fyrir 15 ára og yngri
Rafmagn 500 kr sólarhringurinn.
Heimild: Sjá hér
Mynd: Tjaldsvæði Hvammstanga