Sorry, english text is not ready...
Rafting á Hvítá neðan við Gullfoss - Artic Adventure
Erfiðleikastig 2+ af 5 mögulegum.
Hvítá er fallegt og hressilegt fljót í klukkutíma fjarlægð frá Reykjavík, þar hafa nú í 20 ár verið starfræktar vinsælustu flúðasiglingar landsins frá bátahúsinu okkar, Drumbó. Farin er 7 kílómetrar leið gegnum falleg gljúfur og margvíslegar flúðir. Siglingar á Hvítá henta öllum og nálægðin við Gullna hringinn og Reykjavík hafa skapað ánni gríðarmiklar vinsældir. Siglingin hefst við Veiðistaðinn og liðast niður fljótið gegnum flottar öldur og miðlungs stórar holur. Siglt er gegnum sérstæðar bergmyndanir í Brúarhlöðum og sé þess óskað fá ræðarar að stökkva þar af kletti í ánna. skemmtileg og fjölbreytt sigling fyrir alla sem eru í ævintýraleit!
Örugg brottför fyrir minnst 2 þátttakendur alla daga kl. 8:00 og 12:00 frá Fjallakofanum á Laugavegi 11 eða frá Drumboddsstöðum kl. 10:00 og14:00 sé hist á staðnum. Þetta gildir tímabilið 15. maí til og með 15. september.
Verð:
9.990 kr á mann án aksturs frá Reykjavík.
Innifalið er flúðasigling og heitar sturtur og sauna eftir siglinguna.
14.990 kr á mann með akstri frá Reykjavík kl. 8:00 og hádegisverðahlaðborði.
15.990 kr á mann með akstri frá Reykjavík kl. 12:00 og grillveislu.
Fjarlægð frá Reykjavík: 100 km.
Lengd ferðar: 3 klst. án aksturs frá Reykjavík. 7 klst. með akstri fram og tilbaka frá Reykjavík.
Aldurstakmark: 12 ár til að sigla niður alla ána. 10 ár til að sigla niður seinni helminginn.
Þátttakendur verða að taka með sér: handklæði, sundföt, föt til skiptana og hlýja peysu (flís/ull) sem mun líklega blotna.
Fyrirvari: Allar rafting ferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Rafting tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarra aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrir því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku.
Sjá nánar á http://www.adventures.is/