Helgafellskirkja

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...

Helgafellskirkja er timburhús, 10,15 m að lengd og 6,40 m á breidd, með tvískiptan turn við vesturstafn, 2,52 m að lengd og 2,61 m á breidd. Stöpull er ferstrendur og á honum er lágt píramítaþak. Á því er mjór áttstrendur burstsettur turn með hljómop á framhlið og áttstrendri spíru yfir. Kirkjuþak er krossreist og klætt bárustáli en turn og turnþök eru klædd sléttu járni. Stöpull er klæddur bárustáli og kirkjuveggir eru ýmist klæddir bárujárni eða bárustáli. Kirkjan stendur á steinhlöðnum sökkli. Á hvorri hlið kirkju eru fjórir bogadregnir gluggar, einn á hvorri hlið stöpuls og einn á framhlið uppi yfir dyrum. Í þeim er T-laga póstur með tveimur þriggja rúðu römmum neðan þverpósts en fjórum rúðum ofan hans undir boga. Efst á framhlið stöpuls er hringgluggi. Fyrir kirkjudyrum eru spjaldsettar vængjahurðir.

Í forkirkju er stigi til setulofts og spjaldsettar vængjahurðir að framkirkju. Inn af dyrum er gangur og sveigðir bekkir hvorum megin hans. Innst er hár kórpallur, sveigður á framhlið og girtur handriði með renndum pílárum. Setuloft á tveimur stoðum er yfir fremsta hluta framkirkju og er opið af loftinu fram í stöpul. Veggir eru klæddir strikuðum panelborðum og efst á þeim er strikasylla uppi undir borðaklæddri hvelfingu stafna á milli en flatt loft í stöpli undir turn.

Heimild: Sjá hér
Mynd: Anton Stefánsson

Helgafellskirkja er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.

West Iceland

481 Views

Helgafellskirkja

Helgafellskirkja er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar

Hvar er Helgafellskirkja?
Helgafellskirkja er á Snæfellsnesi.
Er Helgafellskirkja í þéttbýli?
Nei, hún er staðsett utan þéttbýlis.
Er Helgafellskirkja starfandi kirkja?
Já, hún er starfandi kirkja.
Er Helgafellskirkja hluti af þjóðkirkjunni?
Já, hún tilheyrir þjóðkirkjunni.
Er Helgafellskirkja opin almenningi við sérstök tilefni?
Já, hún er opin almenningi við helgihald og viðburði.