Tjaldsvæðið að Laugalandi í Rangárvallasýslu er í um 6 kílómetra frá þjóðvegi 1 og er beygt hjáLandvegamótum upp Landveg nr. 26, sama afleggjara og að Galtalækjarskógi. Vegalengd frá Selfossier 35 km og frá Reykjavík eru 90 km.Sími tjaldvarðar er 8956543.Um er að ræða mjög skjólsælt og gott FJÖLSKYLDUTJALDSVÆÐI. Ró verður að vera komin á svæðiðum miðnætti. Falleg náttúra er að Laugalandi og því kjörið að fara í gönguferðir um svæðið.
Aðstaðan
Góð aðstaða fyrir börnNýlega var tjaldsvæðið stækkað og er nú skipt upp í tvö megin svæði. Á svæðinu er mjög góð aðstaðafyrir börn. Tveir sparkvellir eru á staðnum, einn gervigrasvöllur og einn malarvöllur. Þrír leikvellir fyrirbörn, þar af einn m.a. með aparólu og trampólínum.Sundlaug með heitum pottum, rennibraut og gufu er á staðnum. Á tjaldstæðinu eru útigrill, útiborð,rotþró fyrir ferðaklósett, rafmagn og fl..Leyfilegt er að hafa hunda á tjaldsvæðinu ef þeir eru í bandi.
Opnunartími
15. maí til 15. sept
Heimild: Tjaldsvæðið að LaugalandiMynd: Tjaldsvæðið að Laugalandi
Tjaldsvæðið að Laugalandi er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.
Eigandi: Tjaldsvæðið að Laugalandi
Tjaldsvæðið að Laugalandi er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
Staðir nálægt mér
© Anton Stefánsson | antonstefans@gmail.com