Bíldudalskirkja

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...

Kirkja hefur verið á Bíldudal frá 1906, en þá var kirkjustaðurinn fluttur þangað frá Otradal. Bíldudalskirkja var byggð á árunum 1905-1906 og vígð þann 2. desember 2006. Byggingin er teiknuð af Rögnvaldi Á. Ólafssyni og er steinsteypt. Kirkjan er hin reisulegasta og sómir sér vel í þorpinu.

Í Bíldudalskirkju eru ýmsir merkir gripir. Má þar meðal annars nefna fornan skírnarsá, kaleik og patínu úr silfri.

Eins má nefna þar tvær altaristöflur. Önnur er frá 1916, máluð af Þórarni B. Þorlákssyni listmálara, og sýnir Maríu við gröfina er Kristur sagði: „Kona, hví grætur þú?“ Hin er úr Otradalskirkju og frá 1737 og sýnir heilaga kvöldmáltíð. Í kirkjunni er einnig predikunarstóll frá 1699, með myndum af Kristi og postulunum.

 

Heimild: Sjá hér
Mynd: Helgi Halldórsson

Bíldudalskirkja er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.

West Fjords

888 Views

Bíldudalskirkja

Bíldudalskirkja er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar

Hvar er Bíldudalskirkja?
Bíldudalskirkja er í Bíldudal á Vestfjörðum.
Er Bíldudalskirkja í þéttbýli?
Já, hún er í þéttbýli.
Er Bíldudalskirkja starfandi kirkja?
Já, hún er starfandi kirkja.
Er Bíldudalskirkja hluti af þjóðkirkjunni?
Já, hún tilheyrir þjóðkirkjunni.
Er Bíldudalskirkja opin almenningi við sérstök tilefni?
Já, hún er opin almenningi við helgihald og viðburði.