Elliðaárdalur

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...

Elliðaárdalurinn er eitt stærsta græna svæðið innan þéttbýliskjarna Reykjavíkur. Hann er jafnframt eitt vinsælasta svæðið til útivistar, leikja og íþróttaiðkunar af ýmsu tagi. Dalurinn einkennist af fjölbreyttu umhverfi, landslagi og gróðurfari en þungamiðjan eru Elliðaárnar sem dalurinn er kenndur við.

Elliðaár falla úr Elliðavatni í norður og vestur milli Breiðholts og Selás- og Ártúnsholt í tveimur kvíslum. Má segja að þær skipti borginni í tvennt við Elliðaárósa. Lax gengur upp í árnar og eru þær með vinsælli laxveiðiám á suðvesturhorni landsins. Elliðaár voru virkjaðar árið 1921 og er stærsta stíflan nálægt gamla Árbæjarbænum. Í Elliðaárdal hefur verið stunduð skógrækt en þar má einnig finna fjölda náttúrulegra gróðurlenda. Fuglalíf er mjög auðugt í dalnum. Meðal áhugaverðra staða sem eru í Elliðaárdal eða í jaðri hans eru Árbæjarsafn, Minjasafn Orkuveitu Reykjavíkur og hesthúsahverfi Hestamannafélagsins Fáks í Víðidal.

Heimild: Sjá hér

Elliðaárdalur er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.

South West Iceland

1,324 Views

Elliðaárdalur

Elliðaárdalur er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar

Hvar er Elliðaárdalur?
Elliðaárdalur er í Reykjavík.
Hvers konar svæði er Elliðaárdalur?
Þetta er grænt dal- og útivistarsvæði.
Renna ár í gegnum Elliðaárdal?
Já, Elliðaár renna um dalinn.
Er Elliðaárdalur vinsæll til útivistar?
Já, hann er mjög vinsæll.
Er Elliðaárdalur aðgengilegur almenningi?
Já, hann er opinn öllum.