Héðinsfjörður

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...

Héðinsfjörður er tæplega 6 km langur eyðifjörður nyrst á Tröllaskaga, á milli Hestfjalls að vestan og Hvanndalabyrðu að austan. Fyrir botni fjarðarins er ágætt veiðivatn, Héðinsfjarðarvatn, og er útrennsli úr því um Héðinsfjarðarós út í fjörðinn. Við vatnið og inn af því voru áður fáeinir bæir. Næsta byggð til vesturs er í Siglufirði og voru fyrrum fjölfarnar leiðir þangað úr Héðinsfirði um bæði Hestskarð og Hólsskarð. Til austurs var mest farið um Fossabrekkur til Ólafsfjarðar.

Mannskæðasta flugslys á Íslandi varð í Héðinsfirði 29. maí 1947 þegar flugvél Flugfélags Íslands flaug á utanvert Hestfjall. Fórust allir 25 sem í vélinni voru, 21 farþegi og fjögurra manna áhöfn.

Árið 2006 hófst vinna við Héðinsfjarðargöng, sem liggja á milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar um Héðinsfjörð og voru þau opnuð 2. október 2010.

Heimild: Sjá hér
Mynd: Anton Stefánsson

Héðinsfjörður er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.

North Iceland

937 Views

Héðinsfjörður

Héðinsfjörður er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar

Hvar er Héðinsfjörður?
Héðinsfjörður er á Norðurlandi.
Er Héðinsfjörður náttúrulegur fjörður?
Já, hann er náttúrulegur fjörður.
Er Héðinsfjörður hluti af Tröllaskaga?
Já, hann er á Tröllaskaga.
Eru byggðir við Héðinsfjörð?
Nei, engin varanleg byggð er þar.
Er Héðinsfjörður aðgengilegur almenningi?
Já, hann er aðgengilegur um Héðinsfjarðargöng.


Staðir nálægt mér

© Anton Stefánsson | antonstefans@gmail.com

Vefsíðan notast við kökur