Svalbarðskirkja

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...

Svalbarðskirkja er timburhús, 10,70 m að lengd og 5,84 m á breidd. Þakið er krossreist og klætt bárujárni. Kirkjan er klædd slagþili og stendur á steinhlöðnum sökkli. Á hvorri hlið kirkju og á hvorum stafni eru þrír sexrúðu gluggar. Fyrir kirkjudyrum eru spjaldsettar vængjahurðir og bjór yfir.

Inn af kirkjudyrum er gangur og þverbekkir hvorum megin hans en veggbekkir í kór. Lágt kórþil klætt póstaþili er í baki innstu bekkja. Í kórdyrum eru áttstrendir kórstafir með renndum súlum efst og boga yfir. Prédikunarstóll er framan kórþils sunnan megin og stoðir með boga yfir eru við inngöngu í hann. Veggir eru klæddir póstaþili en brjóstlisti er utan á klæðningunni undir gluggum umhverfis kirkjuna. Þverbitar eru milli veggja og yfir kirkjunni skarsúðarloft opið upp undir mæni.

Heimild: Sjá hér

Kirkjan stendur í Svalbarði.

North Iceland

575 Views

Svalbarðskirkja

Hluti af staðarsögu.

Algengar spurningar

Hvar er Svalbarðskirkja?
Svalbarðskirkja er á Norðurlandi.
Er Svalbarðskirkja í þéttbýli?
Já, hún er í þéttbýli.
Er Svalbarðskirkja starfandi kirkja?
Já, hún er starfandi kirkja.
Er Svalbarðskirkja hluti af þjóðkirkjunni?
Já, hún tilheyrir þjóðkirkjunni.
Er Svalbarðskirkja opin almenningi við sérstök tilefni?
Já, hún er opin almenningi við helgihald og viðburði.