Sorry, english text is not ready...
Kópavogskirkja var reist á árunum 1958–1962 eftir teikningum frá embætti
húsameistara ríkisins sem Hörður Bjarnason veitti forstöðu á þeim tíma.
Ragnar Emilsson, arkitekt hjá embættinu, vann ásamt húsameistara mikið
að teikningu kirkjunnar.
Grunnur hennar var helgaður þann 16. ágúst árið 1958 og hornsteinn lagður
af biskupi Íslands þann 20. nóvember árið eftir. Það var svo þann
16. desember árið 1962 sem kirkjan var vígð af Sigurbirni Einarssyni,
þáverandi biskupi Íslands.
Kópavogskirkja er krosskirkja og að því leyti hefðbundin, en bogar hennar,
sem svo mjög einkenna hana, gera hana sérstaka og gefa henni í senn bæði
tignarlegt og mjúkt yfirbragð.
Kirkjan þykir fögur og góður vitnisburður um þá sem að unnu og er verðug
umgjörð um helgihald og tilbeiðslu. Hún stendur á stað sem nefnist Borgir
eða Borgarholt, en umhverfi hennar er friðað vegna þeirrar sérstöðu og
þess margbreytileika sem það býr yfir.
Frá kirkjunni er útsýni mikið og fagurt, enda eru þeir margir sem koma
þangað bæði til að njóta hins mikla útsýnis, skoða kirkjuna og njóta þar
friðar og andlegrar uppbyggingar.
Kópavogskirkja stendur á hæð með útsýni.