Skjálfandi er flói á norðurströnd Íslands og liggur á milli Tjörness og ónefnds skaga sem er á milli Skjálfanda og Eyjafjarðar. Í flóann renna tvö stór vatnsföll, Laxá í Aðaldal sem er víðfræg laxveiðiá og Skjálfandafljót, jökulfljót sem kemur úr Vatnajökli.
Á austurströnd flóans er kaupstaðurinn Húsavík en þaðan er vinsælt að fara í hvalaskoðunarferðir út á flóann enda er hvalagengd mikil þar. Við botn flóans eru miklir sandflákar en að vestanverðu gnæfa Víknafjöll, allt að 1100 metra há.
Við mynni flóans að vestanverðu liggur Flatey á Skjálfanda, en þar var umtalsverð byggð. Eyjan fór í eyði árið 1967.
Heimild: Sjá hérMynd: Jón Ingi
Skjálfandi er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.
Eigandi: Jón Ingi Cæsarsson - Flickr
Skjálfandi er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
Staðir nálægt mér
© Anton Stefánsson | antonstefans@gmail.com