Sundlaug Hofsósar

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...

Sundlaugin er 25 metra löng og 10,5 metra breið. Við hana er heitur pottur og vaðlaug.

Ný og glæsileg sundlaug var tekin í notkun á Hofsósi í Skagafirði 27.mars 2010.   Laugin og þjónustuhúsið sem henni fylgir, er gjöf þeirra Lilju Pálmadóttur á Hofi og Steinunnar Jónsdóttur í Bæ til íbúa Skagafjarðar.  Báðar eiga þær ættir rekja til Skagafjarðar og með þessari gjöf vilja þær sýna í verki velvilja til samfélagsins.
Nýja sundlaugin og umhverfi hennar er einkar glæsilegt.  Lauginni var valinn staður niður á sjávarbakka, sunnarlega í þorpinu, ofan við svonefnda Staðarbjargarvík.  Laugin er þannig frágengin að þegar synt er frá suðri til norðurs rennur vatnsflötur laugarinnar saman við hafflötinn neðan hennar með beina stefnu á Drangey.
Sigríður Sigþórsdóttir arkitekt hannaði mannvirkið, burðarvirki og lagnahönnun var í höndum Verkís ehf. og verktaki var Sveinbjörn Sigurðsson hf.  Sundlaugin hefur verið tæp tvö ár í byggingu, en það voru þau Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Dorrit Moussaieff forsetafrú sem tóku fyrstu skólfustungu að henni í apríl 2008.
Heimild: Sjá hér

Laugin er mjög vinsæl.

North Iceland

1,740 Views

Sundlaug Hofsósar

Einstakt útsýni yfir Skagafjörð.

Algengar spurningar

Hvar er sundlaug Hofsósar?
Sundlaug Hofsósar er á Norðurlandi.
Er sundlaug Hofsósar í þéttbýli?
Já, hún er í þéttbýli.
Er sundlaug Hofsósar opin almenningi?
Já, hún er opin almenningi.
Er sundlaug Hofsósar skipulögð baðaðstaða?
Já, hún er skipulögð sundlaug.
Er sundlaug Hofsósar rekin af sveitarfélagi?
Já, hún er rekin á vegum sveitarfélags.