Tjaldstæði Varmahlíðar

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...

Fjölskylduvænt svæði með ótal afþreyingarmöguleikum í nágrenninu.  Svæðið er sunnan til í Reykjarhóli sem er skógi vaxið og því mjög skjólgott. Tjaldsvæðið er í misstórum básum sem eru afmarkaðir með trjábeltum.  Af Reykjarhóli er stórkostlegt útsýni yfir Skagafjörð og sólarlagið er ólýsanlegt. Sér stæði f. húsbíla/hjólhýsi fyrir þá sem vilja. Tjöld sér (ekki innan um bíla og hjólhýsi).

Aðstaðan: Friðsæll og notalegur staður með snyrtilegum salernum, heitu og köldu vatni og rafmagni. Þvottavél, þurrkari og sturta er einnig á staðnum. Stutt er í alls kyns afþreyingu. Tveir fótboltavellir eru við tjaldsvæðið og aðeins 250 m. ganga eftir fallegum skógarstíg að sundlaug sem er 25 x 12.5 m., ásamt heitum potti. Að auki er sér barnalaug sem er heitari, með lítilli rennibraut fyrir allra minnstu gestina.

Annað: Upplýsingamiðstöð er á staðum þar sem allar upplýsingar varðandi afþreyingu, gönguleiðir, þjónustu, söfn, kirkjur og fl.

ATH. Tjaldsvæðin á Sauðárkróki, Hofsós, Hólum og Varmahlíð eru í samstarfi þannig að hægt er að gista fyrstu nóttina á einhverju af þessum fjórum tjaldsvæðum og fá þá lægra verð næstu nótt á eftir á einhverju af hinum tjaldsvæðunum. Nauðsynlegt er að framvísu greiðslukvittun af fyrra tjaldsvæði.

Verðskrá:

  • 1.000 kr fyrir fyrstu nóttina
  • 800 kr fyrir næstu nætur.
  • Elli og örorkuþegar:  800 kr
  • Elli og örorkuþegar:  600 kr fyrir næstu nætur
  • Rafmagn:  600 kr
  • Aðeins greitt fyrir 12 ára og eldri.
  • Sturta:  250 kr
  • Þvottavél:  400 kr
  • Þvottaefni:  100 kr pr vél
  • Þurrkari:  500 kr

Heimild: Sjá hér
Mynd: tjoldumiskagafirdi.is

Tjaldstæði Varmahlíðar er miðsvæðis.

North Iceland

645 Views

Tjaldstæði Varmahlíðar

Hentar vel fyrir fjölskyldur.

Algengar spurningar

Hvar er tjaldstæði Varmahlíðar?
Tjaldstæði Varmahlíðar er á Norðurlandi.
Hvað er tjaldstæði Varmahlíðar?
Það er tjaldsvæði við þéttbýli.
Er tjaldstæðið ætlað tjöldum?
Já, það er ætlað til tjaldsetningar.
Er tjaldstæði Varmahlíðar notað af ferðalöngum?
Já, það er ætlað ferðalöngum.
Er tjaldstæði Varmahlíðar skipulagt?
Já, um er að ræða skipulagt tjaldsvæði.