Glaumbæjarkirkja

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...

Glaumbæjarkirkja er reist 1925-1926 og í henni er margt merkilegra gripa. Þar á meðal eru spjöld úr gömlum prédikunarstóli frá 1685 með myndum af Kristi, Pétri, Lúkasi, Matteusi, Markúsi, Maríu mey og krossfesting­unni, sem prýða veggi kirkjunnar.
 
Arkitektar kirkjunnar voru Einar Erlendsson og Rögnvald­ur Ólafsson. Ólafur Kristjánsson frá Ábæ var yfirsmið­ur kirkjunnar en Friðrik Páls­son múrari á Sauðárkróki sá um steypuvinnu og múrverk. Árið 1994 voru miklar endurbætur gerðar á kirkjunni, sem Hjörleifur Stefánsson arkitekt stýrði. Þá voru bekkirnir frá 1926 látnir víkja fyrir nýjum, en grátur (gráður) og prédikun­arstóll, sem einnig voru smíðuð í kirkju­na 1926, héldu sér. 
 
Nýr predikunarstóll var smíðaður fyrir nýja kirkju 1926 og sá gamli seldur á upp­boði. Hann var tekinn sundur og spjöld­in notuð fyrir farg á hey sem segir margt um nýtni og sjálfsbjargarviðleitni manna fyrr á árum og ólíkan tíðaranda og verð­mætamat. Ekki voru stólspjöldin lengi notuð sem heyfarg því glöggur vegfar­andi kom auga á þau og sagði frá þeim. Hann áði við hey­fúlgu þar sem á voru hengdir timburflekar með merkilegum málverkum. Þekkti hann þar m.a. sjálfan Lykla-Pétur. Þessi ágæti vegfarandi keypti spjöld­in og árið 1996 voru þau gefin kirkjunni.
 
Starfsfólk Byggðasafns Skagfirðinga sinnir gæslu á kirkjunni, sem er opin alla daga, yfir sumartímann.
 
Glaumbæjarkirkja er 7 km. frá vegamótum í Varmahlíð, frá þjóðvegi 1 og stendur við Sauðárkróks­braut nr. 75.

Heimild: Sjá hér
Mynd: A.More.S

Glaumbæjarkirkja er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.

North Iceland

494 Views

Glaumbæjarkirkja

Glaumbæjarkirkja er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar

Hvar er Glaumbæjarkirkja?
Glaumbæjarkirkja er á Norðurlandi.
Er Glaumbæjarkirkja í þéttbýli?
Nei, hún er staðsett utan þéttbýlis.
Er Glaumbæjarkirkja starfandi kirkja?
Já, hún er starfandi kirkja.
Er Glaumbæjarkirkja hluti af þjóðkirkjunni?
Já, hún tilheyrir þjóðkirkjunni.
Er Glaumbæjarkirkja opin almenningi við sérstök tilefni?
Já, hún er opin almenningi við helgihald og viðburði.