Tjaldsvæði Grindavíkur

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...

Sumarið 2009 var nýtt og glæsilegt tjaldsvæði tekið í notkun í Grindavík. Þá var nýtt 200 fermetra þjónustuhús tekið í notkun í maí 2011. Um er að ræða 13.500 fm svæði sem staðsett er við Austurveg 26. Þar eru 42 stæði fyrir húsbíla, fellihýsi og tjaldvagna. Afgirt svæði og sérhannað Fullkomin aðstaða til seyrulosunar. Malbikuð og hellulögð bílastæði í innkomu tjaldsvæðisins. Tvö leiksvæði fyrir börn með rólum, 2 köstulunum, kóngulóarneti o.fl. Í nýja þjónustuhúsinu er aðstaða til að elda, sturtur, þvottahús og aðgangur að interneti.

Aðkoma: Þegar keyrt er inn í bæinn er ekið í gegnum hringtorg og svo beint áfram eftir Víkurbrautinni. Beygt til vinstri við Ránargötu og svo til vinstri inn Austurveg (við kirkjuna).

Aldurstakmark á tjaldsvæðinu fyrir þá sem ferðast einir er 18 ár (20 ár á Sjóaranum síkáta)

Tjaldsvæði - gjaldskrá sumarsins 2012

Verð fyrir fullorðna kr. 950, ókeypis fyrir 14 ára og yngri,
Fjórða hver nótt ókeypis.
Kr. 600 fyrir félaga í félagi húsbílaeigenda og eldri borgara.
Útilegukortið gildir á tjaldsvæðinu.
Hópar/ættarmót greiða eftir samkomulagi.
Rafmagn kr. 750, seyrulosun ókeypis.

Sími umsjónarmanns á tjaldsvæði er 660 7323.

Uppákomur: Bæjarhátíðin Sjóarinn síkáti, sjómannadagshelgina 1. - 3. júní. Fjölskylduhátíð með glæsilegri dagskrá frá Viðburða- og menningardagskrá Grindavíkurbæjar og Saltfisksetursins; Jónsmessuganga, listsýningar, náttúruvika, gönguhátíð, Þórkötlustaðaréttir o.fl. Sjá www.grindavik.is

Heimild: Sjá hér
Mynd: Grindavík

Staðsett nálægt náttúruperlum.

South West Iceland

673 Views

Tjaldsvæði Grindavíkur

Hentar vel fyrir styttri dvöl.

Algengar spurningar

Hvar er tjaldsvæði Grindavíkur?
Tjaldsvæði Grindavíkur er á Reykjanesi.
Hvað er tjaldsvæði Grindavíkur?
Það er svæði ætlað til tjaldsetningar.
Er tjaldsvæðið í þéttbýli?
Já, það er við byggð.
Er tjaldsvæðið ætlað tjaldgestum?
Já, það er ætlað ferðalöngum.
Er tjaldsvæði Grindavíkur skipulagt?
Já, það er skipulagt tjaldsvæði.