Sultartangastöð

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...

Framkvæmdir hófust árið 1997 en stöðin komst í fullan rekstur árið 2000. Þetta varð fimmta stórvirkjun Landsvirkjunar en áður höfðu verið byggðar virkjanir við Sigöldu og Hrauneyjafoss í Tungnaá, Búrfell í Þjórsá, og neðanjarðarvirkjun í Blöndu.

Sultartangastöð nýtir vatn er rennur úr Sultartangalóni sem myndaðist á árunum 1982 – 1984 þegar Þjórsá og Tungnaá voru stíflaðar austan undir Sandafelli, u.þ.b. kílómetra ofan ármótanna. Sultartangastíflan er lengsta stífla á Íslandi. Á byggingartíma Sultatangastöðvar var stíflan hækkuð um einn metra og við það óx lónið úr 18 í 20 km².

Aðrennslisgöng liggja úr lóninu í gegnum Sandafell að jöfnunarþró suðvestan í fellinu. Við enda þróarinnar er stöðvarinntak eða aðhlaupshús og þaðan liggja stálpípur að stöðvarhúsinu. Aflvélar eru tvær af Francis gerð, hvor um sig 60 MW.

Frárennslisskurður liggur frá stöðvarhúsinu í rótum Sandafells, um Álftafell og niður á Hafið. Skurðurinn sveigir í stefnu meðfram farvegi Þjórsár og fylgir honum að stað 800 m ofan við veitustíflu Búrfellsvirkjunar þar sem hann liggur út í farveg Þjórsár.

Heimild: Sjá hér
Mynd: Anton Stefánsson

Sultartangastöð er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.

South Iceland

841 Views

Sultartangastöð

Sultartangastöð er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar

Hvar er Sultartangastöð?
Sultartangastöð er á hálendi Íslands.
Hvaða tegund virkjunar er Sultartangastöð?
Hún er vatnsaflsvirkjun.
Er Sultartangastöð í rekstri?
Já, stöðin er í rekstri.
Hvaða orkulind nýtir Sultartangastöð?
Hún nýtir vatnsafl.
Er Sultartangastöð aðgengileg almenningi?
Nei, hún er ekki opin almenningi.