Sundlaug Hlaðir

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...

Sundlaugin er austan við félagsheimilið Hlaðir og eru búningsklefar og vatnsgufubað í kjallara félagsheimilisins auk útiklefa. Sundlaugin er 16,67 x 8 metrar og við hana er einnig barnavaðlaug með rennibraut og tveir heitir pottar. Hægt er að semja um leigu á sundlauginni í tengslum við leigu á tjaldsvæðinu og félagsheimilinu utan opnunartíma. 
Opnunartími sundlaugarinnar er alla daga frá kl. 13.00 til kl. 19.00 en lokað á þriðjudögum. Sundlaugin er opin frá 1. júní til ágústloka.

Tjaldsvæði að Hlöðum

Að Hlöðum er stórt tjaldstæði fyrir tjöld, hjólhýsi, fellihýsi og tjaldvagna. Sér aðstaða fyrir tæmingu salerna frá húsbílum.

Á tjaldsvæðinu eru tvö tunnugrill, leiksvæði fyrir börnin, og góð salernisaðstaða, auk þess sem hægt er að fara í sturtu og vaska upp undir berum himni. 

Annað

Margir þekktir staðir eru í nágrenninu svo sem Glymur í Botnsá, Harðarhólmi, Geirshólmi, Hallgrímskirkja í Saurbæ, Hallgrímssteinn, Vatnaskógur, Hvalstöðin og gönguleiðirnar um Síldarmannagötur og Leggjarbrjót. Stutt er í veiði, golf, og hótel.



Upplýsingar fást hjá staðarhaldara:

Guðjóni Sigmundssyni síma: 660 8585
Félagsheimilið Hlaðir sími: 433 8877
Sundlaug Hlöðum sími: 433 8980
Heimasíða: www.hladir.is
Netfang: gaui@gauilitli.is

Heimild: Sjá hér
Mynd: Hlaðir.is

Sundlaug Hlaðir er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.

West Iceland

889 Views

Sundlaug Hlaðir

Sundlaug Hlaðir er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar

Hvar er sundlaug Hlaða?
Sundlaug Hlaða er á Vesturlandi.
Er sundlaug Hlaða í þéttbýli?
Nei, hún er staðsett utan þéttbýlis.
Er sundlaug Hlaða opin almenningi?
Já, hún er opin almenningi.
Er sundlaug Hlaða skipulögð baðaðstaða?
Já, hún er skipulögð sundlaug.
Er sundlaug Hlaða rekin af sveitarfélagi?
Já, hún er rekin á vegum sveitarfélags.