Kvika

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...

Lítill fótapottur í fjörunni rétt hjá Gróttu.

Útilistaverk Ólafar Nordal (fædd 1961) er gert úr heilum grágrýtissteini sem í er sorfin hringlaga fótbaðs- eða vaðlaug.

Laugin er lýst upp með mildu rafljósi að innanverðu og í hana rennur stöðugt óblandað, forkælt jarðhitavatn úr borholum Seltjarnarness, en það hefur einstaka samsetningu og jafnvel lækningamátt.

Ólöf er fjölhæfur listamaður sem hefur unnið með margs konar efni. Viðfangsefni sín sækir hún gjarnan í þjóðlega arfleifð og menningarleg minni sem hún setur í nútímalegt samhengi. Náttúran og tengsl okkar við landið eru henni einnig hugleikin.

Í Kviku vísar hún til fornrar laugarhefðar Íslendinga um leið og hún hvetur fólk til að upplifa hita og kraft jarðar með því að fara úr sokkum og skóm og verða eitt með náttúrunni í fjöruborðinu. Þannig verður það þátttakendur í eins konar gjörningi „á mörkum byggðar og náttúru, lands og sjávar, himins og jarðar”, segir listakonan. „Með heita fætur streymir blóðið um kroppinn, líkamleg og andleg skynjun vex, næmi fyrir umhverfinu vaknar og tengsl við náttúruöflin myndast.”

Heimild: Sjá hér
Mynd: Anton Stefánsson

Kvika er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.

South West Iceland

2,799 Views

Kvika

Kvika er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar

Hvar er Kvika?
Kvika er á Reykjanesskaga.
Hvað er Kvika?
Kvika er lítið manngert baðsvæði við sjó.
Er Kvika náttúrulaug?
Hún er manngerð en nýtir náttúrulegt heitt vatn.
Er Kvika við strandlengju?
Já, hún er staðsett við sjó.
Er Kvika formleg baðaðstaða?
Hún er skipulögð baðaðstaða.